Sigló Golf völlurinn kom mun betur undan vetri en í fyrra og hefur góðviðrið í maí átt þar einhvern hlut að máli. Ástandið á vellinum er mjög gott miðað við árstíma og fyrsta mótinu er lokið.

Sl. miðvikudag hófst nefnilega Mótaröðin hjá Golfklúbbi Siglufjarðar og mættu 16 kylfingar til leiks. Mótaröðin er vikulegt golfmót innanfélagsmanna í GKS er henni skipt upp í tvo flokka eins og síðustu ár. Keppt í punktakeppni með forgjöf.

Í B flokki með yfir 28 í forgjöf sigraði Ólafur Guðmundur Guðbrandsson með 20 punkta, en hann er skráður með 33,3 í forgjöf. Í A flokki með undir 28 í forgjöf sigraði Þorsteinn Jóhannsson með 19 punkta en hann er skráður með 18,8 í forgjöf.

Jón Sigmundsson var í 2. sæti í B flokki með 17 punkta og Ása Guðrún Sverrisdóttir var í 2. sæti í A flokki með 17. punkta.

Myndir frá síðasta miðvikudegi; völlurinn allur að koma til en vel hvítt á skíðasvæðinu í Skarðinu og reyndar meiri snjór en á löngum köflum í vetur.

Heimild og myndir/Frétta- og fræðslusíða UÍF