Mikil áhersla er á skapandi starf í MTR. Bæði á það við um fjölbreytt og skapandi verkefnaskil í öllum námsgreinum en einnig á hinar hefðbundnu skapandi greinar eins og myndlist, tónlist og ljósmyndun.

Hægt er að ljúka stúdentsprófi af listabraut með áherslu á fyrrnefndar greinar.

Í gær mættu nemendur í fyrsta tíma í grunnáfanga í listljósmyndun. Þar var verið að læra hvernig allir hlutar myndavélarinnar vinna saman og hvað stjórntækin gera svo nemendur geti notað ljósmyndamiðilinn á skapandi hátt. Nemendur fengu að kíkja á gamla blaðfilmuvél sem virkar nákvæmlega eins og allar aðrar myndavélar en er algjörlega handvirk.

Nemendur vinna þó jafnan með nýjustu stafræna tækni svo þarna mættist gamli og nýi tíminn.

Á forsíðumynd er Birna Björk Heimisdóttir að kíkja í gegn um gömlu belgvélina, Hörður Ingi Kristjánsson fylgist með.


Mynd/SMH