Garðfuglahelgi 2026
— 23.- 26. janúar
Þú velur hagstæðasta daginn og telur í 1 klukkutíma
Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma í einn dag yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.
Fyrstu skrefin í garðfuglatalningu
Fyrir börn og fullorðna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, þá höfum við útbúið: Garðfuglar – Hjálparblað með myndum.pdf sem hægt er að prenta út og nota við talninguna.
Einnig er hægt að kaupa eftirfarandi tvær bækur í vefverslun Fuglaverndar til að átta sig á fuglum og garðfuglafóðrun: “Væri ég fuglinn frjáls” og “Garðfuglar”. Þær eru ekki mjög þykkar og þægilegar að hafa við hendina jafnt inni sem úti.
Takið eftir að ef margir fuglar koma í fóður í einu og það er erfitt að telja, þá er hægt að taka mynd af hópnum og telja fuglana af myndinni!
Skráning og skilafrestur
Þú getur valið þá leið sem þér hentar best til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Við mælum með rafrænni skráningu, þar sem gögnin eru þá slegin inn og fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum.
Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2026
Athugið að eingöngu á að skila talningu eins klukkutíma eins dags:
Garðfuglahelgin janúar 2026 rafræn skráning athuguna.
Ef þú vilt heldur prenta út formið og senda, þá eru tvær útgáfur skjala í boði:
Garðfuglahelgin – eyðublað.pdf (92 kB)
Garðfuglahelgin – eyðublað.docx (75 kB)
Útfyllt eyðublöð má senda í tölvupósti á gardfugl@gmail.com eða í bréfapósti til: Fuglaverndar, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.
Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2026
Lestu meira um fóðrun garðfugla, garðyrkju í fuglagarðinum og garðfuglategundir.
Í vefverslun Fuglaverndar fást bæði fuglafóður, fuglafóðrarar og fuglahús , bókin “Garðfuglar” og bókin “Væri ég fuglinn frjáls”, um fyrstu skrefin í fuglaskoðun.
Einnig er að finna alls konar fóðrara og fóðurhús í vefversluninni.
Garðfuglakönnun veturlangt
Þau sem að kjósa að telja reglulega og skila inn talningu í apríl/ maí er bent á Garðfuglakönnun 2025-26 , enn er hægt að hefja þátttöku í henni.

Garðfuglar – Hjálparblað með myndum
Mynd af vefsíðu Fuglaverndar: Gráþröstur. Ljósmyndari; Örn Óskarsson



