Bólusetningarvottorð vegna Covid-19 eru sérstaklega mikilvæg fyrir þá einstaklinga sem ferðast til annarra landa.
Fram að þessu hefur á landamærum Íslands, og annarra landa innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), ekki verið gerð krafa um gildistíma bólusetningarvottorða.
Frá og með 1. febrúar 2022 verða vottorð fyrir grunnbólusetningu, þ.e. tvær bólusetningar eða eina með Janssen, aðeins tekin gild á landamærum Íslands og annarra EES landa, í 270 daga eða í um 9 mánuði og eru dagar taldir frá seinni bólusetningunni. Þetta þýðir að bólusetningarvottorð þess einstaklings sem lauk grunnbólusetningu 15. júní 2021 fellur úr gildi 12. mars næstkomandi.
Um leið og farið er í 3. bólusetningu, eða 2. bólusetningu á eftir Janssen, gildir ofangreind takmörkun ekki og bólusetningarvottorð viðkomandi vegna Covid-19 telst gilt ótímabundið á landamærum innan EES.
Skoða á vef Stjórnarráðsins
Mynd: Pexel