Nú er undirbúningur fyrir vorsýningu nemenda skólans í fullum gangi þar sem til sýnis verður afrakstur af vinnu nemenda á vorönn undir einkunnarorðum skólans; frumkvæði – sköpun – áræði.
Verk frá nemendum streyma í skólann og er verið að finna þeim stað í sal og á göngum. Einnig verða rafrænar sýningar á vef skólans. Á sýningunni í skólahúsinu eru fjölbreytt verk nemenda í myndlist, ljósmyndun og fleiri námsgreinum og rafrænar sýningar eru á verkum sem unnin voru í ýmsum greinum sem og í erlendum verkefnum.
Vorsýningin opnar í húsnæði skólans laugardaginn 17. maí kl. 13.00 og verður opin til 16.00. Sýningin verður svo opin á opnunartíma skólans fram að útskrift þann 23. maí. Rafrænu sýningarnar eru aðgengilegar á vef skólans sem og sýningar síðustu ára. Þar má sjá fjölmörg metnaðarfull dæmi um skapandi vinnu nemenda skólans.
Eru allir hvattir til að leggja leið sína í skólann þessa daga og skoða glæsileg verk nemenda okkar.
