Víða hefur loftmengunar orðið vart vegna yfirstandandi eldgoss á Sundhnjúksgígaröðinni. Bæði hefur mælst töluverð gasmengun vegna brennisteinsdíoxíðs (SO2) ásamt því að mikil gosmóða hefur legið yfir þar sem fínar súlfatagnir (SO4) svífa um.

Matvælastofnun vill benda á að loftmengunin hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk, en brennisteinsdíoxíð getur meðal annars valdið ertingu í öndunarfærum og augum. Fyrir vikið er mikilvægt að dýraeigendur verji dýr sín fyrir loftmengun eins og kostur er. Sérstaka aðgát þarf að hafa þegar ungviði og dýr sem eru veik fyrir í öndunarvegi eiga í hlut. Umráðamenn dýra ættu að leitast við að forðast álag á skepnur, svo sem vegna þjálfunar sem felur í sér hlaup eða aðrar streituvaldandi aðstæður, þegar loftmengun er mikil. Fólk sem hyggur á mótshald, sýningar eða hestaferðir skyldi hafa þessi atriði sérstaklega í huga við skipulagningu. Hægt er að fylgjast með útbreiðslu gosmóðu á vef Veðurstofunnar.

Því er beint til umráðamanna dýra í grennd við gosstöðvarnar að tryggja skepnum á útigangi aðgang að fersku rennandi vatni eða færa þeim hreint vatn reglulega. Gosefni geta m.a. safnast í stöðnuðu vatni og því er ráðlegt að koma í veg fyrir eins og hægt er að dýr drekki úr stöðnu vatni á svæðum þar sem mengun er mikil. Grasbítum skyldi einnig tryggt ómengað fóður.

Jafnframt ráðleggur Matvælastofnun fólki eindregið frá því að taka hunda eða önnur dýr á gosstöðvarnar, bæði vegna mögulegrar gasmengunar og einnig þar sem töluverð mengun skaðlegra efna svo sem saltsýru (HCl) sem getur verið á yfirborði í nágrenni gosstöðvanna. Sýran getur ert þófa og getur borist í meltingarveg ef dýrin sleikja þófana vegna ertingarinnar.

Sjá annars frekari upplýsingar og ítarefni: