Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir er sendur út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi á föstudögum frá klukkan 8 til 10 hér á FM Trölla.

Oskar Brown undirbýr hlustendur FM Trölla fyrir helgina með því að spila frábæra tónlist, fara yfir helgarveðrið og forsíður dagblaðanna. Hann býður líka upp á einstaka morgunleikfimi og segir skemmtilegar sögur af fólki utan úr heimi.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.