Eitt af samstarfsverkefnum EIMS er þróun ferðaþjónustupakka sem nefnist: “Græni Túrinn”. Hann snýst um að vinna með aðilum í ferða- og orkugeiranum að því að þróa pakkaferðir sem byggja á sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda á NA-landi. Í október kom til landsins rýnihópur sem prufukeyrði túrinn til að safna gögnum og reynslu til frekari þróun verkefnisins.

Páll Ólafsson fór yfir ylrækt á Hveravöllum sem á sér meira en aldarlanga sögu

 

Nánar um “Græna Túrinn”

Töluverður áhugi er meðal tiltekins markhóps ferðamanna um að upplifa sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og samspil manns og náttúru á jarðhitasvæðum. Meðal þess sem NA-land hefur upp á að bjóða í þeim efnum er fjölbreytt orkuframleiðsla með jarðhita og vatnsafli til rafmagnsframleiðslu sem og lífdísil- og metanframleiðslu þar sem úrgangi er breytt í eldsneyti.

Holutoppur í grennd við Kröflu

Nýting jarðhita til ræktunar á grænmeti á sér einnig langa sögu á svæðinu og er sífellt verið að leita nýrra leiða til að nýta jarðhitann enn frekar til matvælaframleiðslu. Þetta samspil manns og náttúru finnst mörgum áhugavert og vilja kynna sér það nánar. Til að mæta þeim áhuga, og ekki síður til að auka fjölbreytni í nýtingu jarðhitans, hófst þróun “Græna Túrsins” í samvinnu við aðila í ferða- og orkugeiranum.

Hverarönd austan við Námaskarð vekur ávalt athygli ferðamanna

Þrjár útgáfur af túrnum hafa verið skilgreindar og voru þær prufukeyrðar í október með rýnihóp sem endurspeglar markhópinn sem horft er til.

Ein útgáfa túrsins fól í sér að skoða jarðfræði Mývatnssveitar, fara í Kröflu, Laxárvirkjun, gróðurhúsin að Hveravöllum, kíkja á villta gullfiska, snæða jarðhitamat á Sölku á Húsavík og fara í Sjóböðin. Önnur útgáfa snýst um Akureyri og nágrenni þar sem farið var yfir starfsemi Norðurorku, kíkt heimsókn í Orkey til að skoða lífdíselframleiðslu, farið í Moltu, Glerárvirkjun skoðuð sem og metanvinnsla í Glerárdal, farið á Kaffi Kú og kíkt við í Laugalandi.

Þessa dagana er unnið úr gögnum sem safnað var í ferðinni og verða þau nýtt til frekari þróunar túrsins.

 

Frétt og myndir: Eimur