Gratineraður fiskur á hrísgrjónabeði

  • hrísgrjón (c.a. 1 1/2 bolla fyrir átvöglin)
  • þorskur eða ýsa ( 1 kg)
  • töfrakrydd (má sleppa)
  • 2,5 dl rjómi
  • 3 msk majónes
  • 2 tsk dijon sinnep
  • 2 tsk karrý
  • 50-100 gr ferskrifinn parmesan
  • rauð paprika
  • 1/2 blaðlaukur
  • 200 gr rifinn ostur

Hitið ofninn í 180°. Sjóðið hrísgrjón og leggið í botninn á eldföstu móti. Skerið fiskinn í sneiðar, leggið yfir hrísgrjónin og kryddið með salti, pipar og því sem þykir gott (gott að notai töfrakrydd frá Pottagöldrum).

Hrærið saman rjóma, majónesi, sinnepi, karrý og parmesan. Smakkið til og saltið og piprið. Hellið sósunni yfir fiskinn og stráið fínskorinni papriku og blaðlauk yfir. Setjið að lokum rifinn ost yfir og bakið í ca 30 mínútur.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit