Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður hélt upp á 100 ára afmæli félagsins í gær að Rimum í Svarfaðardal. Félagið var stofnað þann 27. desember árið 1921.

Margrét Guðmundsdóttir og Þórarinn Hjartarson fluttu erindi um sögu félagsins á meðan gestir gæddu sér á veitingum og hlýddu á.

Gísli Bjarnason, sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs, færði formanni félagsins Jóni Haraldi Sölvasyni blómvönd og afmælisgjöf frá Dalvíkurbyggð að þessu tilefni.

Myndir/Dalvíkurbyggð