Aðgengisdagur Sjálfsbjargar verður haldinn í fyrsta skipti laugardaginn 27. ágúst nk. 

Þennan dag býður Sjálfsbjörg öllum sem vilja, að taka þátt í að skrá inn upplýsingar um aðgengi að verslunum, kaffihúsum, veitingastöðum, söfnum, kirkjum, íþróttamannvirkjum og annarri þjónustu.

Það eina sem þið þurfið að gera er eftirfarandi:

1. Hlaða niður TravAble appinu í símann ykkar
2. Fá ykkur göngutúr í nærumhverfi ykkar einhvern tímann á laugardeginum
3. Kíkja á hina ýmsu staði og fylla inn upplýsingar um aðgengi í TravAble aðgengisupplýsinga appið

Það væri frábært ef þið mynduð taka myndir frá deginum og senda á okkur á info@sjalfsbjorg.is eða birta sjálf myndir á samfélagsmiðlum og merkja myndina #aðgengisdagur2022

Sjálfsbjörg, sem hefur aðsetur að Lækjargötu 2, Siglufirði, tekur þátt í deginum hér og hvetur íbúa Fjallabyggðar til að hittast á Torginu Siglufirði, laugardaginn 27. ágúst kl. 13:00 og taka ganga um nærumhverfið og fylla inn í TravAble appið. Að því loknu, kl. 14-16, býður Sjálfsbjörg upp á kaffi og vöfflur í húsnæði sínu á Siglufirði.

TravAble appið má nálgast í Applestore og GooglePlay og hægt er að fylla inn í það hvar sem er og hvenær sem er. Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að fylla inn í appið upplýsingar um aðgengi í báðum byggðarkjörnum, og víðar eftir því sem við á.

Hlökkum til dagsins og vonum að þið takið sem flest þátt.