Þátturinn Tíu Dropar, sem venjulega er á sunnudögum á FM Trölla, verður að þessu sinni á morgun, annan í hvítasunnu, en ekki í dag hvítasunnudag.

Stjórnendur þáttarins, “Tröllahjónin” Gunnar Smári Helgason og Kristín Sigurjónsdóttir, eru upptekin í dag við fermingarmyndatökur og ýmislegt annað sem tengist fermingum.

Fylgist með á morgun, annan dag hvítasunnu, og hlustið á Tíu Dropa á FM Trölla.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is

Trölli óskar lesendum og hlustendum gleðilegrar Hvítasunnu.