Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi merktum Ali, Bónus eða FK frá Matfugli vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur í öryggisskyni ákveðið að innkalla inn lotuna og sent frá sér fréttatilkynningu.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina frá fyrirtækinu og lét heilbrigðiseftirlitið vita.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer: 011-21-28-2-28 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, marineraðarkjúklingabringur), pökkunardagur 16.08.2021 – 19.08.2021
  • Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kassinn,Extra, Netto netverslun.

Neytendur sem hafa keypt kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðin að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls í Mosfellsbæ.

Ítarefni