Guðný Kristín Guðnadóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Leikskólans Ásgarðs á Hvammstanga.
Guðný hefur starfað við kennslu á leikskólastigi frá árinu 2014. Hún hefur lokið B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum og stundar MT nám í menntunarfræði leikskóla við Háskóla Íslands.
Hún hefur starfað á leikskólanum Ásgarði frá árinu 2019, og verið þar aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri.
