Matvælastofnun hefur veitt Háafelli ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Nauteyri í Strandabyggð í samræmi við lög um fiskeldi.

Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vefsíðu stofnunarinnar þann 6. september sl. og var frestur til að skila inn athugasemdum til 4. október 2019.

Háafell sótti um stækkun á rekstrarleyfi fyrir 800 tonna seiðaeldi á laxi og regnbogasilungi að Nauteyri í Strandabyggð. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 200 tonna seiðaeldi á laxi og regnbogasilungi á sama stað. Umsókn um stækkun rekstrarleyfis var móttekin 24. október 2018. Úttekt starfsstöðva hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Háafells FE-1146 að Nauteyri en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni

 

Mynd: MAST