Vegna framkvæmda við húsin að Hafnarstræti 73-75 og 80-82 á Akureyri er talið nauðsynlegt að loka fyrir alla umferð, bæði gangandi og akandi, frá Hafnarstræti 71 að norðurgafli Hafnarstrætis 79.
Lokunin hefur þegar tekið gildi og stendur út apríl 2025. Umferð suður Hafnarstræti verður beint um hjáleið sem liggur til austurs frá Hafnarstræti að Austurbrú og þaðan til suðurs og verður sá hluti Austurbrúar einstefna á meðan lokunin er í gildi.
Gert er ráð fyrir að ákvörðun um umferðarstýringu svæðisins verði endurskoðuð fyrir lok apríl.
Á mynd má sjá útfærslu lokunar.
