Finnur Yngvi Kristinsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit.

Á fundi sveitarstjórnar þann 16. ágúst var samþykkt að ráða Finn Yngva Kristinsson í starf sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og tekur hann við af Ólafi Rúnari Ólafssyni sem þegar hefur látið af störfum að eigin ósk.

Finnur Yngvi lauk BS námi í viðskiptafræði ásamt MBA námi í verkefnisstjórnun frá Arizonaí Bandaríkjunum árið 2008 og hefur frá því verið búsettur á Siglufirði þar sem hann hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Maríu, leitt rekstur og uppbyggingu Rauðku ehf., sem á meðal annars og rekur Sigló Hótel og veitingastaðina Hannes Boy og Kaffi Rauðku. Finnur Yngvi er einnig rafvirkjameistari og menntaður raf- og rekstrariðnfræðingur frá Tækniháskóla Íslands.

„Eftir rúm níu ár í þessari viðamiklu uppbyggingu á Siglufirði var kominn tími á breytingar hjá okkur hjónum og þegar ég sá þetta spennandi tækifæri opnast í Eyjafjarðarsveit ákvað ég að láta slag standa“ segir Finnur Yngvi. „Ég þrífst vel í fjölbreyttum verkefnum og nýt þess að stuðla að framförum þess samfélags sem ég bý í og el börn mín upp í. Ég tel starf sveitastjóra Eyjafjarðasveitar afar spennandi starf, bæði fjölbreytt og krefjandi. Það eru mörg spennandi verkefni í farvatninu hjá Eyjafjarðarsveit og er mér heiður af því að taka þátt í því starfi á komandi árum“.

Finnur Yngvi er 39 ára og giftur Sigríði Maríu Róbertsdóttur og eiga þau þrjú börn. „Það tók okkur hjónin ekki langan tíma að ákveða okkur hvort við værum til í að búa í Eyjafjarðarsveit. Maður hugsar alltaf fyrst um börnin sín. Hér hefur metnaðarfullt starf verið unnið fyrir ungu kynslóðina og er grunnskólinn sérstaklega öflugur og framsækinn. Umhverfið er líka bæði aðlaðandi og fjölskylduvænt og hlakkar okkur því til að koma á svæðið.“ bætir Finnur Yngvi við að lokum.

Finnur Yngvi var valinn úr hópi 22 umsækjenda og kemur til starfa í byrjun september.

 

Frétt: Eyjafjarðarsveit.is
Mynd: Gunnar Smári Helgason