Fasteignamiðlun kynnir eignina Hafnartún 24, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0314 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hafnartún 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0314, birt stærð 226.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða enda raðhús með garði, heitum potti, palli og bílskúr. Eignin er á tveimur hæðum og samanstendur af eldhúsi, stofu, 5 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvotthúsi, geymslu og bílskúr. Efri hæð eignarinnar er með sér anddyri, eldhúsi, stofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum og útgang út á suðursvalir. Neðri hæð eignarinnar er með sér anddyri, þvottahúsi, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, geymslu og útgangi út á pallinn. Eldhús og baðherbergi neðri hæðar var endurnýjað árið 2017. Búið er að drena með vestur og suðurhlið eignarinnar og þak var endurnýjað árið 2013 og settur pappi. Gluggar á norðurhlið eignarinnar voru endurnýjaðir 2013. Bílskúr er skráður 33m2 og hiti er í plani. Auka stæði malbikað er við enda eignarinnar. 

Anddyri efri hæðar:er rúmgott með flísum á gólfi og gólfhita.
Eldhús: er með eikarinnréttingu og ljósum kvartstein á borði. Flísalgt er á milli efri og neðri skápa. Vínyl dúkur er á gólfi.
Stofa: liggur saman með borðstofu og er með parket á gólfi. Útgangur er úr stofu út á steyptar suður svalir. Á svölum er lúga upp á geymsluloft sem liggur yfir allri eigninni.
Svefnherbergi: eru fimm misstór, þrjú á efri hæð og tvö á neðri.
Baðherbergi efri hæðar: er með flísum á gólfi og gólfhita, hvítri innréttingu, upphengdu klósetti og baðkari. Gluggi er með opnanlegu fagi. 
Baðherbergi neðri hæðar: var endurnýjað árið 2017. Þar eru flísar á gólfi með gólfhita og veggum, eikar innrétting, upphengt klósett, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús: er með ljósum flísum á gólfi og opnanlegur gluggi. Þvottahús liggur út frá anddyri neðri hæðar. 
Geymsla: er innaf þvottahúsi með flotuðu lökkuðu gólfi og góðu hilluplássi.
Bílskúr: er með flotuðu lökkuðu gólfi og bílskúrshurð með ráphurð.
Garður: er með timburpalli að hluta og grasbala. Meðfram eigninni er einnig steinlagður stígur með sandkassa og vegasalti. Heitur pottur er á palli. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.