Haki var að senda frá sér sína aðra hljóðversplötu. Platan heitir Undrabarnið og kom út 1. október á öllum helstu streymisveitum.

Á plötunni vinnur Viktor Frank flest lögin með Haka, aðrir upptökustjórar sem komu við sögu eru Ásgeir Orri Ásgeirsson, Ýmir Rúnarsson (Whyrun) og Eyþór Andri.

Áður hafa komið út lögin Flýg sem var eitt mest spilaða lagið árið 2020, Ekkert vesen á mér (feat. Huginn) og Hverfisgata.

Í laginu Flýg notar Haki brot úr lagi Bubba Morthens, Velkomin. Lagið er af plötunni Regnbogans stræti sem Bubbi gaf út árið 2019.

Haki gaf út plötuna OFFLINE í september 2019. Platan var unnin með pródúsernum Ými Rúnarssyni (Whyrun) og Sæmundi Hrafni Lindusyni (Slaemi).

Lagalisti

  1. One Love – ISB112108601     
  2. Undrabarnið – ISV982030305
  3. Lifum hátt (feat. Floni) – ISB112108602                
  4. Hverfisgata – ISB112100901  
  5. Uh ah Freestyle – ISB112108603       
  6. Ekkert vesen á mér (feat. Huginn) – IB112101401            
  7. YGM – ISB112108604 
  8. Voodoo – ISB112108605        
  9. Flýg (feat. Bubbi Morthens) – ISB112005601           
  10. 123 – ISB112108606   

Aðsent.