Fimmtudaginn 25. október kl. 20 – 22 heimsækir Hallgrímur Helgason Siglufjörð og les fyrir gesti úr nýrri bók sinni, Sextíu kíló af sólskini.
Hún fjallar um mikla umbrotatíma í íslenskri sögu; þar segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni.
Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði [Siglufirði]? Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.
Saga sem bæði grætir og gleður.
Bókin verður til sölu á staðnum og mun Hallgrímur bæði lesa valinn kafla og árita keyptar bækur.
Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.