Fimmtudaginn 25. október kl. 20 – 22 heimsækir Hallgrímur Helgason Siglufjörð og les fyrir gesti úr nýrri bók sinni, Sextíu kíló af sólskini.

Hún fjallar um mikla umbrotatíma í íslenskri sögu; þar segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni.

Dreng­ur sem bjarg­ast fyr­ir krafta­verk hlýt­ur að eiga framtíð en það er eins og for­lög­in geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eft­ir­læti kaup­manns­ins á Fagur­eyri, þræll á fram­andi duggu eða niður­setn­ing­ur hjá kot­ung­um í Seg­ulf­irði [Siglufirði]? Í stöðnuðu sam­fé­lagi tor­fald­ar eru ekki fleiri mögu­leik­ar – en svo kem­ur síld­in! Öreig­ar lands­ins sjá pen­inga í fyrsta sinn og allt breyt­ir um svip.

Saga sem bæði grætir og gleður.

Bókin verður til sölu á staðnum og mun Hallgrímur bæði lesa valinn kafla og árita keyptar bækur.

Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.