Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni – allir fánar á loft!
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS.
Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur. Andlitsmálun í boði frá kl. 12:00.
Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða Sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar
Tónlistaratriði
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg
Að lokinni hátíðarstund við Berg:
Hestamennska – Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta
undir börnum við Krílakot.
Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku –
Sápubolti, vatnsrennibraut og fleira skemmtilegt.
Allir sem vilja fá grillaða pylsu í kirkjubrekkunni.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.
Myndlistasýning Emmi Kalinen í Bergi opin frá 10 – 17.
Allir velkomnir.
Allir krakkar fá frían snúð og kakó hjá Böggvisbrauð Café á 17. júní.
Opið í Böggvisbrauð Café til kl. 17:00
(athugið að kaffisala UMFS verður ekki í ár)