Hátíðardagur var á skíðasvæðinu í Skarðsdal í gær, þegar formleg opnun á töfrateppinu og súlulyftu fór fram að viðstöddum miklum fjölda fólks.
Anna Marie Jónsdóttir hóf söfnun fyrir töfrateppinu fyrir nokkrum árum og náði til fjölda fólks og fyrirtækja sem lögðu þessu verkefni lið.
Hjalti Gunnarsson formaður skíðafélagsins, veitti þessari veglegu gjöf móttöku fyrir hönd íbúa Fjallabyggðar, og Anna Marie gangsetti töfrateppið undir dynjandi lófaklappi viðstaddra.
Þetta breytir algjörlega allri aðstöðu í fjallinu fyrir fjölskyldur með börn sem eru að byrja skíðaiðkun, takk fyrir allir sem komu að þessu verkefni með einum eða öðrum hætti.
Egill Rögnvaldsson fyrrum skarðsprins gangsetti nýju súlulyftuna og var það vel við hæfi að fyrsti gesturinn til að fara upp með lyftunni var Andrés Stefánsson rafvirki og skíðakappi.
Veitingar og lifandi tónlist voru í boði Fjallabyggðar og L7-verktaka.








Myndir og heimild/ Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg