Hátíðarfundur AA samtakana í Fjallabyggð verður haldinn í safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju föstudaginn langa kl. 16:00.
Allir vinir og velunnarar AA samtakanna eru hjartanlega velkomnir á hinn árlega hátíðarfund okkar.
Stofnfundur AA samtakanna á Íslandi var haldinn 16. apríl 1954, sem bar upp á föstudaginn langa. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að afmæli AA samtakanna á Íslandi miðast við föstudaginn langa ár hvert.
Í dag eru starfandi um 300 deildir innan AA samtakanna um land allt. Hver þessara deilda heldur að minnsta kosti einn fund í viku.