Tryggja verður öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir alla óháð búsetu. Lög um heilbrigðisþjónustu eru afar skýr um að allir landsmenn skuli eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er unnt að veita.

Tækniþróun í heilbrigðisþjónustu
Tækniþróun síðustu ára hjálpar okkur gríðarlega í þeirri vegferð. Með því að fjárfesta í henni getum við veitt enn faglegri heilbrigðisþjónustu í umhverfi heilbrigðisstarfsfólks hvar sem það starfar á landinu. Sú fjárfesting tryggir faglegt vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks sem styður einnig við fjarheilbrigðisþjónustu beint inn á heimili fólks. Þannig bætum við á einfaldan hátt aðgengi fólks að víðtækri heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og samhliða spörum við íbúum ferðalag, vinnutap og ríkinu niðurgreiðslu ferðakostnaðar.

Fjárfesting í tækjakosti
Enn sárvantar því miður nauðsynlegan tækjakost í umhverfi heilbrigðisstarfsfólks víða um land til að hægt sé að fullgreina bráðaveikindi á sem skemmstum tíma. Lífið er undir í slíkum tilfellum. Við tekur bið eftir sjúkraflugi og flugtíminn suður til að komast undir hendur sérfræðinga til að bjarga lífi okkar og heilsu.  Komum krafti í tæknivæðingu í heilbrigðisþjónustu um allt land, okkur öllum til heilla.

Berglind Harpa Svavarsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og skipar 3. sæti á lista flokksins fyrir komandi Alþingiskosningar sem fara fram 30.nóvember.