Út er komið á Spotify og allar helstu streymisveitur nýtt lag, Heima Heimaey, með hljómsveitinni Hr. Eydís og söngkonunni Ernu Hrönn.
Lagið er einnig í spilun á FM Trölla.
Hljómsveitin tók gamla partýslagarann Heya Heya með The Blaze frá 1982 og færði hann yfir í íslenskt partýform, í senn óður til Vestmannaeyja og gleðinnar á Þjóðhátíð.
„Mig hefur í nokkurn tíma langað að gera þessa útgáfu, en hugmyndinni laust niður í hausinn á mér þegar ég lá í heitum potti í sumarbústað og heyrði Heya Heya með The Blaze spilað í Hamingjustund þjóðarinnar á Bylgjunni. Það var eiginlega ómögulegt að sleppa þessu, svissa bara Heya Heya Hey yfir í Heima Heimaey og málið dautt!“ segir Örlygur Smári einn meðlima Hr. Eydís og bætir við „…þó við verðum ekki á Þjóðhátíð í sumar létum við það ekki stoppa okkur, en við ætlum að trylla Hjarta Hafnarfjarðar og Akureyri um versló.“

Smelltu á play og komdu þér í Vestmannaeyjagírinn!
Spotify-hlekkur á nýja lagið: https://open.spotify.com/track/12iA9ZaC11bopVkAuBiqkW?si=f2dd26a3ee56422d
Aðsent