Þátturinn Tíu Dropar verður í beinni útsendingu í dag kl. 13 – 15 GMT, frá helli í Angostura gljúfrinu á Kanaríeyjum, á eins árs afmæli þáttarins.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum, en einmitt í dag fluttu þau inn í hellinn sem þau keyptu þar ytra í vor og hafa verið að standsetja.

Þau spjalla um flesti á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir, spila létt lög og ræða hvernig það er fyrir nútímafólk frá Íslandi að búa í helli uppi í fjöllum á Kanaríeyjum, fjarri annarri mannabyggð, þar sem nútímaþægindi eru af skornum skammti.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is