Í dag kemur í spilun á FM Trölla nýtt lag með Helga Björnssyni, Í faðmi fjallanna. Lagið er samið af Helga sjálfum og var unnið í samstarfi með Þormóði Eiríkssyni sem sá um upptökur lagsins.

Lagið er úr kvikmyndinni Ljósvíkingar, sem verður frumsýnd 3. september í Reykjavík og 5. september á Ísafirði. Myndin kemur í almennar sýningar 6. september.

Ljósvíkingar er saga um vináttu. Æskuvinir reka vinsælan fiskveitingastað á Ísafirði. Þegar annar þeirra kemur út úr skápnum sem kona, á hinn erfitt með að sætta sig við breytinguna.

Ljósvíkingar er mynd eftir Snævar Sölvason, en með aðalhlutverk fara Björn Jörundur Friðbjörnsson og Arna Magnea Danks. Í öðrum hlutverkum eru meðal annars Helgi Björnsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Vigdís Hafliðadóttir og Hjálmar Örn Jóhannsson.

Myndband við lagið á YouTube: https://www.youtube.com/watch?v=izz-WxiSd8c

Lagið á Spotify