Hin árlega Knappstaðamessa var haldin um síðustu helgi segir Halldór Gunnar Hálfdansson á facebooksíðu Fljótamanna. Hún er löngu orðin að hefð sem við í Fljótum höldum fast í.

Að venju kemst einungis hluti gesta inn í litlu Knappsstaðakirkju en úti í kirkjugarði sitja margir og spjalla og að messu lokinni er boðið upp á kaffi en heimilin í sveitinni leggja fram kaffibrauð og fá allir sem að því stóðu kærar þakkir. Sumir gestana komu á hestbaki til messunnar sem er órjúfanlegur hluti af þessari hefð. Sigríður Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari og naut aðstoðar Sigurbjargar Rögnvaldsdóttur meðhjálpara og kirkjuvarðar á Sauðárkróki. Rögnvaldur Valbergsson lék undir á hið forna orgel kirkjunnar. Í ár eru 40 ár liðin frá endurreisn kirkjunnar og við skulum gefa henni Gunnu í Helgustöðum orðið:

“Guðbjörg Indriðadóttir var aðalhvatamaður að því að við boðuðum til fundar 19 júní 1984 á Ketilási þar sem áhugamannafélag um varðveislu Knappstaðakirkju var stofnað. Þar var Ríkharður Jónsson fundarstjóri og 24 mættu á þennan fyrsta fund og fyrsta stjórn félagsins var kosin þar þ.e. Hjördís Indriðadóttir, Guðrún Hanna Halldórsdóttir og Guðbjörg Indriðadóttir. Meðstjórnendur voru kosnir, Sigurlína Kristinsdóttir, Ásgrímur Sigurbjörnsson og RíkharðurJónsson. Stofnfélagar voru 24 fundargestir og 3 sem báðu símleiðis um að vera skráðir stofnfélagar.”

Það er ljóst að framtak þessara Fljótakvenna varð til þess að bjarga Knappsstaðakirkju en hún var orðin illa farin fyrir 40 árum og upp komu hugmyndir um að flytja hana á Löngumýri í Skagafirði. Knappsstaðkirkja er líklega elsta timburkirkja landsins, reist upphaflega árið 1834, en sóknin var sameinuð Barðssókn árið 1880. Knappsstaðir fóru í eyði árið 1974.

Til að heiðra minningu Guðbjargar Indriðadóttur er messan yfirleitt haldin annan sunnudag í júli, en Guðbjörg fæddist 10. júlí árið 1941 en lést árið 1986.

Myndir og texti/Halldór Gunnar Hálfdansson