- 225 gr smjör við stofuhita
- 2/3 bolli hnetusmjör (ég notaði crunchy Peter Pan hnetusmjör)
- 1 bolli sykur
- 1 bolli púðursykur
- 2 egg
- 2 tsk vanillusykur
- 2 og 2/3 bolli hveiti
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- rúmlega 1/3 bolli Nutella
Hrærið saman smjör, hnetusmjör, sykur, púðursykur, egg og vanillusykur þar til blandan verður mjúk og kekkjalaus. Bætið hveiti, matarsóda og salti saman við og blandið vel. Setjið Nutella í klessum yfir deigið og dreifið því um með smjörhníf. Passið að Nutellað á ekki að blandast saman við deigið heldur að vera víðs vegar í deiginu. Kælið deigið í ískáp í 15 mínútur til að herða Nutellað.
Hitið ofninn í 180° og leggið smjörpappír á ofnplötu. Gerið kúlur úr deiginu og leggið á ofnplötuna. Þrýstið létt ofan á kúlurnar þannig að þær fletjist aðeins út. Bakið í miðjum ofni í 8-10 mínútur eða þar til þær fá fallegan lit og byrja að brúnast á köntunum.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit