Fasteignarmiðlun kynnir efri hæðina að Hornbrekkuvegi 7, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 215-4107 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: Hér

Um er að ræða efri hæð í tvíbýli með sérinngangi, palli og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búri, stofu/borðstofu, baðherbergi, þremur til fjórum svefnherbergjum, þvottahúsi og geymslu. Búið er að endurnýja vatnslagnir og klóakslagnir innan eignarinnar, gólfefni, baðherbergi og eldhús. Einnig hafa hitaveituofnum verið skipt út sem og gler í gluggum. Eignin var klædd með bárujárnsklæðningu og einagruð fyrir nokkrum árum. 

Fostofa: er flísalögð með ágætis fatahengi. 
Eldhús: er með ljósri U-laga HTH innréttingu og grárri borðplötu. Nýlegt spanhella er í borðplötu. 
Stofa/borðstofa: er parketlögð með frábæru útsýni yfir fjörðinn. 
Baðherbergi: er með fibo tresbo plötum á veggjum og flísalagt á gólfi. Upphengt klósett, Walk in sturtuklefi, hvít innrétting og vaskur. 
Svefnherbergi: eru þrjú talsins öll með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er með útgang út á steyptar svalir. Möguleiki er á fjórða herberginu. 
Þvottahús: er flísalagt með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara, vask og sérútgang út í garð. 
Geymsla: er mjög rúmgóð með steyptu gólfi. 
Pallur: er úr timbri og er fyrir framan eignina með timbur skjólvegg. 
Garður: er grasi gróinn með timbur geymsluskúr. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.