Hið árlega verslunarmannahelgar mót var haldið 3. ágúst og mættu 53 kylfingar til leiks.

Veðrið var mjög fínt þegar kylfingar hófu leik, sólar glæta að skína í gegnum þokuna og veðrið hið besta þegar allir komu upp í skála eftir hring.

Fólk almennt séð ánægt með daginn og þá sérstaklega hvað völlurinn var frábær og rennslið á flötunum gott. Viljum þakka Sigló Hótel og Hannes Boy fyrir að styrkja mótið með frábærum vinningum.

Karlaflokkur:
1. Jóhann Már Sigurbjörnsson, frá GKS – 35 punktar (betri seinni 9 holurnar)
2. Salmann Héðinn Árnason, frá GKS – 35 punktar
3. Óðinn Freyr Rögnvaldsson, frá GKS – 34 punktar

Kvennaflokkur:
1. Ólína Þórey Guðjónsdóttir, frá GKS – 40 punktar
2. Guðrún Þorsteinsdóttir, frá GS – 37 punktar
3. Sólrún Ólína Sigurðardóttir, frá GR – 34 punktar

Nándarverðlaun á par 3 brautum:
6 hola – Tómas Kárason
7 hola – Arnar Freyr Þrastarson
9 hola – Ólafur Haukur Kárason

Úrslit má sjá nánar á golf.is

 

 

Fréttatilkynning