Í vikunni fara fram hreinsunardagar í þéttbýliskjörnum Dalvíkurbyggðar.
Í dag, 21. maí eru hreinsunardagar á Hauganesi og Árskógssandi, verið er að koma upp gámum á báðum stöðum þannig að hægt sé að losa sig strax við það sem safnast saman.
Dalvíkurbyggð vill hrósa íbúum á báðum stöðum fyrir frumkvæði og dugnað í hreinsun staðanna ár eftir ár og er þátttaka íbúa þar til mikillar fyrirmyndar.
Hreinsunardagar fara fram á Dalvík 23. og 24. maí, þá verður búið að koma upp gámi utan gámasvæðis.