Hrísey

Hríseyjarhátíðin fer fram í júlí ár hvert og stendur yfir helgina 14. – 15. júlí. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a. í óvissuferðum um eyjuna,  fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.

Aðaldagskráin er svo á laugardeginum þá er í boði dagskrá frá hádegi og fram á kvöld, sem felst í fjöruferð með Skralla trúð, dráttavélaferðum, boðið verður upp á aðgang að leiktækjum, tónlist, ratleik og fleira. Að venju endar hátíðin á kvöldvöku á sviðinu, varðeldi og brekkusöng. Hátíðin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Í Hrísey er öll almenn þjónusta til staðar s.s verslun, veitingahús, sundlaug, tjaldsvæði og gisting. Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar og er boðið upp á allt að níu ferðir á dag. Siglingin tekur aðeins 15 mínútur frá Árskógssandi, sem er um 35 kílómetra frá Akureyri.

Aðgangur á hátíðina er ókeypis.
Fyrsta hátíðin var haldin árið 1997 og hefur hún verið árlegur viðburður síðan. Það er Ferðamálafélag Hríseyjar sem stendur að hátíðinni.
Frétt: Hrísey.is
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir