Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur í dag verið að vinna að smitrakningu á Akureyri vegna smits sem kom upp í gærkvöldi og tengist það inn á veitingastaðinn Berlín sem er í Skipagötu 4 á Akureyri.

Óskar lögreglan eftir því að allir þeir viðskiptavinir sem voru inni á staðnum sl. laugardag, 24. október, á tímabilinu kl. 11:00-14:00, hafi samband við lögregluna.

Best er að gera það með skilaboðum á Facebook eða þá í síma 444-2800 á milli kl. 08:00-16:00.