Veitingageirinn.is greindi frá því á dögunum að nýtt kaffihús væri komið á Siglufirði og gaf Trölla.is góðfúslegt leyfi til að deila þessari skemmtilegu frétt.

Nýtt kaffihús hefur opnað í sama húsnæði og barinn Kveldúlfur sem staðsettur er við hliðina á rakarastofunni, Hrímnir Hár og Skegg við Suðurgötu 10 á Siglufirði. Eigendur eru hjónin Jón Hrólfur Baldursson og Ólöf Kristín Daníelsdóttir.

Formleg opnun var á kosningadaginn sjálfan, laugardaginn 1. júní.  Stefnt er að því að hafa opnunartímann frá 14:00 til 17:30 (jafnvel lengur ef þörf krefur) frá miðvikudegi til laugardags og sunnudagar eru til skoðunar.

„Við tókum ákvörðun strax að hafa þetta í sínu allra einfaldasta formi.“

Sagði Hrólfur í samtali við veitingageirinn.is, aðspurður um matseðilinn.

„Við verðum með Belgískar vöfflur, eina sort af sætabrauði, nokkrar tegundir af kúluís og tvær týpur af panini. Svo að sjálfsögðu kaffidrykki og barinn verður á sínum stað.

Ég vil nota tækifærið hér til að þakka henni Fríðu í Súkkulaðikaffihúsi Fridu dásamlega fyrir hjálpina og ráðleggingarnar.“

Hvers vegna að opna kaffihús?

„Við erum búin að vera í smá tilvistarkreppu með barinn hjá okkur í dálítinn tíma.

Eins og allir sem eru í smáfyrirtækjageiranum vita kannski þá er rekstrarumhverfið að verða allt að því vonlaust og við ákváðum að hætta týpískum barrekstri í október í fyrra þó svo að við höfum tekið annað slagið á móti hópum í vetur og eins er alltaf hægt að fá drykk í rakarastólinn.“

Sagði Hrólfur og bætir við:

„En við tímum ekki að tæma salinn og taka niður barinn því við höfum trú á því að við getum látið barinn og kaffihús ganga í einhverju formi yfir sumarið og með miklum takmörkunum á opnunartíma yfir vetrartímann.

Eiginilega strax eftir verslunarmannahelgi þarf að huga að því að hægja á.“

Þau hjónin fengu elstu dóttur sína til liðs með þeim með hugmyndir um kaffihúsapælinguna. Hún kemur til með að sjá um reksturinn, með leiðsögn foreldra, og að læra inn á þetta og skoða rekstur fyrirtækis frá fleiri hliðum en að þiggja bara laun fyrir vinnu.

Hún fær að fylgjast með innkomu og innkaupum og rekstrarkostnaði fyrirtækis og mun læra af þessu í leiðinni.

„Hún verður verkstjórinn.“

Sagði Hrólfur hress að lokum.

Kaffihús opnar á Siglufirði

Fréttamaður veitingageirans kíkti á kaffihúsið í panini og vöfflur á sjálfan kosningadaginn og var fullt út að dyrum, setið á öllum borðum.

Panini

Vel útilátið panini, grillað með skinku, osti, pestó og mozzarellaosti og val á hvítlauks-, eða sinnepssósu.

Skemmtileg twist, en með panini voru bornar fram strákartöflur, þessar klassísku Piknik kartöflur, geggjað gott.

Belgísk vaffla

Vafflan virkilega góði, ekta belgísk vaffla, hindberjasulta (var hægt að velja nokkrar tegundir af sultum og þeyttur rjómi.

Heimild og myndir/Veitingageirinn.is