Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 347. fundi sínum þann 13. janúar sl. Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra.  Samkvæmt reglugerð nr. 1248/2018 skulu sveitarfélög gera húsnæðisáætlun til fjögurra ára í senn og skulu sveitarfélög skoða árlega hvort þörf sé á endurskoðun áætlunarinnar með tilliti til þróunar og breytinga sem orðið hafa. 

Hlutverk húsnæðisáætlana er að draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er í hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum og setja fram áætlun um hvernig sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf,  bæði til skemmri og lengri tíma. 

Í Húnaþingi vestra hefur verið mikið byggt af íbúðarhúsnæði á síðustu árum, en þrátt fyrir það er mikil uppsöfnuð þörf er varðar framboð af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. 

Lóðaframboð í sveitarfélaginu er gott og mörgum lóðum hefur verið úthlutað á síðustu árum.

Vegna mikillar eftirspurnar eftir íbúðarhúsnæði hefur sveitarstjórn samþykkt  tímabundna heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda af níu lóðum á Hvammstanga og tveimur á Laugarbakka.  Lista yfir lóðirnar má sjá hér.

Sveitarstjórn hefur verið í samstarfi við leigufélagið Bríeti og á síðasta ári var auglýst eftir byggingaraðilum til samstarfs um byggingu íbúðarhúsnæðis á Hvammstanga.  

Skoða á vef Húnaþings vestra