Sérstakur húsnæðisstuðningur 2021
Húnaþing vestra veitir eftirfarandi stuðning í húsnæðismálum með hliðsjón af aðstæðum hvers og eins:
- Sérstakar húsaleigubætur fyrir einstaklingar og fjölskyldur sem eru að fá almennar húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Stuðning til foreldra/forsjáaðila barna 15-17 ára sem leigja á heimavist/námsgörðum.
- Stuðning til námsmanna 18-20 ára sem ekki fá inni á heimavist eða námsgörðum.
- Aðstoð vegna fyrirframgreiðslu húsaleigu og/eða tryggingar.
Endurnýja þarf eldri umsóknir fyrir hvert almanaks-/skólaár eða hverja önn.
Umsóknarblað og reglur um sérstakan húsnæðisstuðning eru að finna á heimasíðu www.hunathing.is. Umsóknarblað er hægt að opna hér, reglurnar hér.
Einnig er hægt að sækja um í Ráðhúsinu. Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi, í síma 4552400.