Frá tímabilinu 1. september til 1. maí eiga öll börn 12 ára og yngri að vera komin heim fyrir klukkan átta á kvöldin, en þau sem eru 13-16 ára ekki seinna en tíu.

Reglurnar miðast við fæðingarár barnanna. Markmiðið með útivistarreglunum er að stuðla að heilbrigðu umhverfi fyrir börn og unglinga.

Reglurnar eru fyrst og fremst settar til verndar börnum og stuðla að því að þau séu ekki ein og eftirlitslaus úti eftir að rökkva tekur. Allir foreldrar vilja börnunum sínum það besta.

Útivistarreglurnar hjálpa foreldrum að setja börnum sínum mörk og styðja þannig við bakið á foreldrum í uppeldishlutverkinu. Því er full ástæða til að vekja athygli á gildandi reglum og hvetja foreldra til að standa saman að því að reglurnar séu virtar segir lögreglan.