Göngin um Hvalfjörð verða lokuð í dag, miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21-23 vegna umfangsmikillar brunaæfingar á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.  

Hjáleið verður um Hvalfjörð (47) meðan á æfingunni stendur. Lokanir verða við gatnamót Hringvegar og Hvalfjarðavegar í Leirársveit og við gatnamót Hringvegar og Hvalfjarðavegar á Kjalarnesi.  

Vegfarendur eru beðnir um að taka tillit til þessa í ferðaáætlunum sínum.

Mynd/Vegagerðin