Fasteignamiðlun kynnir eignina Hvanneyrarbraut 52, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0537 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hvanneyrarbraut 52 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0537, birt stærð 179.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum garði og bílskúr. Gengið er inn frá götu inn á efri hæð eignarinnar en hún skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og svefnherbergi. Einnig er aðgangur úr stofu út á stóran suður timburpall með rafmagnspotti og infrarauðum klefa. Brú er yfir í bílskúr. Anddyri er rúmgott með góðu fatahengi og flísum á gólfi. Eldhús er með viðarinnréttingum og borðplötu með flísum á milli skápa og kork á gólfi. Stofa/borðstofa er með parket á gólfi og góðu gluggaplássi. Stigaop er í stofu niður á neðri hæð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, upphengdu klósetti, vask og hvítri innréttingu. Svefnherbergi er með góðum fataskáp, parket á gólfi og sérútgang út á pall. 
Neðri hæð eignarinnar samanstendur af þremur svefnherbergjum, þvottahúsi, baðherbergi og sérútgang út í garð. Svefnherbergin eru mjög rúmgóð með parket á gólfi. Baðherbergi er með frístandandi sturtuklefa, innréttingu, vask og klósetti og plast parketi á gólfi. Þvottahús er mjög rúmgott með vask og flísum á gólfi. Anddyri niðri er við stigaop og er með flísum á gólfi. 

Framan við eign er hellulögð sétt að bílskúr. Aðgangur er inn á timburpall frá stétt. Bílskúr var byggður síðar eða árið 2006 og er skráður 38,8m2 en gólf er steypt og gott hillupláss. Rafdrifin hurð er á bílskúr og tvær ráphurðir annars vegar inn á pall og hins vegar að götu. Undir bílskúr er óskráð geymsla sem hefur verið eingangruð og gólf steypt. Geymsla er í dag notuð sem hænsnabú en útgangur er úr geymslunni fyrir hænsnin út í stórt búr í garði. 

Eignin er klædd með bárujarni og skipt var um þak árið 2013. Neðri hæð eignarinnar var klædd og einangruð að utan og innan árið 2000. Stór garður er sunnan við eign og bakgarður með grasbala. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.