Út er komið lagið “Í fjarlægum skugga” sem Jóna Margrét Guðmundsdóttir flytur.
Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar á FM Trölla í dag milli kl. 13 og 15.
Ingvar Valgeirsson tónlistarmaður sendi eftirfarandi til Trölla:
“Á dögunum var ég vélaður til að stýra upptökum á og útsetja lag fyrir unga og hæfileikaríka tónlistarkonu á Akureyri, Jónu Margréti Guðmundsdóttur.
Lagið samdi hún sjálf og textann samdi hún ásamt móður sinni Hjördísi Kvaran.“
Flytjendur:
Söngur – Jóna Margrét Guðmundsdóttir
Gítarar – Ingvar Valgeirsson
Bassi – Kristinn Gallagher
Ásláttur, orgel – Kristinn Sturluson
Upptökustjórn og útsetning – Ingvar Valgeirsson, Kristinn Sturluson