Skagafjarðarveitur beina þeim tilmælum til notenda hitaveitu á Sauðárkróki að fara sparlega með heita vatnið.

Nú er mjög kalt og mikil vindkæling og útlit fyrir kulda áfram næstu daga og þess verður vart á stöðu heita vatnsins.
Fyrir liggur að loka þarf sundlauginni, einnig hefur streymi verið minnkað á gervigrasvöllinn. Búið er að hafa samband við stórnotendur og leitað er allra leiða til að minnka notkun þar sem það er hægt.

Íbúar eru beðnir að loka gluggum og minnka rennsli í heita potta eins og hægt er.

Þá hefur einnig verið hægt á rennsli í Sundlaugina á Hofsósi.  Búast má við því að sundlauginni verði lokað en heiti potturinn er opinn enn sem stendur.