Íslenskir fuglaskoðarar komust heldur betur í feitt þegar spurðist út á föstudag í síðustu viku, 13. júní, að úti af Kópaskeri hefði sést fornklumba og væri þar enn. Tegundin, sem er af svartfuglaætt, nefnist á latínu Synthliboramphus antiquus, og á heimkynni í Norður-Kyrrahafi og hafði fram að því einungis sést þrisvar við strendur Evrópu.
Fyrsta tilvikið var 27. maí 1990, en þá sást fornklumba út af suðvesturströnd Bretlands, nánar tiltekið á Jennýjarvogi, norðvestur af Lundey í Devonskíri; fuglinn hélt þar til í um mánaðartíma og birtist svo aftur á sama stað 14. apríl 1991 og var þar til 20. júní sama ár, og svo enn frá 30. mars 1992 og í tæpan mánuð.
Annar sást í millitíðinni, 9. nóvember 2021, á Finnlandsflóa, út af Porkkala, suðvestur af Helsinki, og sá þriðji 24. maí 2023 við árós Odiel, í Huelva-héraði, á Atlantshafsströnd Andalúsíu, Spáni.
Fornklumba er aðeins stærri en haftyrðill, sem er minnstur svartfugla í Norður-Atlantshafi; hún er 20–24 cm á lengd, 150–250 g á þyngd og og með 45–46 cm vænghaf. Hún verpir á skógarbotni, gjarnan í holrými við rætur trjáa, en elur unga sína úti á hafi frá því að þeir eru 1–3 daga gamlir.

Heimild og myndir/Sigurður Ægisson