Húnaþing vestra minnir á möguleika framhaldsskólanema sem stunda nám fjarri heimili til jöfnunarstyrks frá Menntasjóði námsmanna
Hverjir geta fengið jöfnunarstyrk?
Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni geta átt rétt á jöfnunarstyrk.
- Nemandi telst stunda reglubundið nám sé hann skráður í og gengið til prófs í a.m.k. 20 FEIN-einingum á önn.
- Námsmenn í starfsnámi/iðnnámi og aðfaranámi geta átt rétt á bæði námslánum og jöfnunarstyrk. Námsmaður getur þó ekki fengið bæði jöfnunarstyrk og námslán á sömu önn.
- Nemendur í launuðu starfsnámi eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.
- Háskólanemar eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk
Mynd/pixabay