Jafnaðarmannafélag Fjallabyggðar og óháðir hafa kynnt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Listinn var birtur í gær og hann skipa fjórtán einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífi og samfélagi.
Í efsta sæti listans er Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri og í öðru sæti er Pálmi Blængsson, verkefnastjóri. Þriðja sætið skipar Sæunn Gísladóttir, verkefnastjóri hjá RHA og í fjórða sæti er Guðjón M. Ólafsson, ráðgjafi. Í fimmta sæti er Kristín M. Halldórsdóttir, gæðastjóri.
Sjötta til fjórtánda sæti skipa Áslaug Barðadóttir, verkefnastjóri, Hbib Jaouad, matreiðslumaður, Valdís Jörgensdóttir, bókari og Ásta Lovísa Pálsdóttir, kennari. Þá Kristjana Rannveig Sveinsdóttir, listakona, Jón Kort Ólafsson, þjónustustjóri, Hólmar Hákon Óðinsson, námsráðgjafi við MTR, Ægir Bergsson, fyrrverandi matráður og Sæbjörg Ágústsdóttir, stuðningsfulltrúi.
Framboðið endurspeglar breidd í reynslu og störfum, þar sem bæði opinberir starfsmenn og einstaklingar úr einkageiranum eiga sæti á listanum. Með birtingu listans hefur framboðið formlega hafið undirbúning sinn fyrir komandi kosningar.

