Á 96. fundi veitu- og hafnaráðs Dalvíkurbyggðar kom fram að Skipulagsstofnun hefur, með bréfi sem dagsett er 28. maí 2020, tilkynnt þá niðurstöðu sína að framkvæmd smávirkjunar í Brimnesá sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Þeir sem hafa áhuga á geta kynnt sér greinagerðina í heild sinni hér.
Þar kemur fram að kærufrestur er til 6. júlí n.k.
Mynd: Dalvíkurbyggð