Skólahreysti var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri þann 30. apríl kl. 17 og var keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV.

Keppendur Grunnskóla Fjallabyggðar voru þau Mundína Ósk Þorgeirsdóttir (hreystigreip og armbeygjur), Silja Rún Þorvaldsdóttir (hraðabraut), Tómas Ingi Ragnarsson (hraðabraut) og Óðinn Arnar Jónsson (upphýfingar og dýfur). Varamenn voru Sverrir Freyr Lúðvíksson o g Ásdís Ýr Kristinsdóttir.

Nemendur unglingadeildar fóru með rútu á keppnina ásamt kennurum sínum og studdu liðið áfram. 

Keppnisliðið stóð sig frábærlega og endaði í 3. sæti.

Glæsilegur árangur hjá nemendum Grunnskóla Fjallabyggðar. 

Sjá myndir: HÉR

Hér má sjá keppnina á spilara RÚV.

Mynd/af vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar