Kjörskrá Húnaþings vestra liggur frammi frá 14. nóvember á skrifstofu sveitarfélagsins, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga. Opnunartímar eru mánudaga – fimmtudaga kl. 10:00-14:00 og föstudaga kl. 10:00-12:00.

Á heimasíðu Þjóðskrár er hægt að sjá hvort og hvar kjósandi getur kosið.

Kærum vegna kjörskrár skal beint til Þjóðskrár (kosningar@skra.is).

Á kjörskrá eru 981, 493 konur, 486 karlar og 2 kynsegin/annað.

Upplýsingavefur um sameiningarviðræður Dalabyggðar og Húnaþings vestra

Kynningarbæklingur vegna íbúa kosninga um sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar er farinn af stað í dreifingu og á að berast heimilum í báðum sveitarfélögum. Það er tekið fram að ef heimili hefur afþakkað fjölpóst og fríblöð þá kemur bæklingurinn ekki þangað. Því er honum einnig deilt hér á rafrænu formi fyrir þá sem vilja kynna sér innihald hans.

Bæklingurinn er aðallega til að byrja að kynna fyrirkomulag kosninganna ásamt smá samantekt um sveitarfélögin og líkleg áhrif sameiningar: Kynningarbæklingur – rafrænn

Samstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna tveggja, sem hafa tekið þær til umræðu. Álitið má lesa hér: Álit samstarfsnefndar

Eins og auglýst var á heimasíðum sveitarfélaganna var viðmiðunardagur kjörskrár vegna íbúakosningar 6. nóvember sl. og þurfti tilkynning um nýtt lögheimili þarf því að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 á hádegi 6. nóvember.

Þá bendum við á að næstu fundir er varða kynningar á tillögu um sameiningu og álit samstarfsnefndar verða sem hér segir:

Dalabyggð: Mánudaginn 17. nóvember kl. 17:00 í Dalabúð í Búðardal

Húnaþing vestra: Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 17:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra voru tekin tali fyrir nýtt Bændablað sem kom út í vikunni (sjá bls. 10).

Blaðið í heild má nálgast hér: Bændablaðið 20. tölublað 2025 eða á heimasíðu blaðsins: www.bbl.is

Einnig minnum við á upplýsingasíðu sameiningarviðræðnanna: www.dalhun.is