Veðurviðvaranir hafa verið í gildi um allt land, ýmist gular eða appelsínugular. Síðasta gula viðvörunin rennur út um hádegi á morgun á Norðurlandi.
Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast, einkum að aðstoða sauðfjárbændur á norðanlandi og ferðamenn í hvassviðri á Suðurlandi.
Björgunarsveitin á Dalvík hélt inn í Skíðadal í Eyjafirði í morgun til að aðstoða bændur við að koma sauðfé í skjól. Meðfylgjandi eru myndir og myndbönd frá Landsbjörg.
Veðurstofan varar nú einnig við skriðuhættu og vatnavöxtum á Norður- og Austurlandi vegna mikillar úrkomu næstu daga, sérstaklega við Flateyjarskaga og Tröllaskaga.


